NEONBANDIÐ!

Fullkomið atriði á árshátíðina, í veisluna eða á dansleikinn!

Þetta mikilvæga augnablik þegar það þarf að „kveikja á stuðinu!“

Gestirnir hafa setið allt kvöldið en nú er komið að því að kynda svolítið upp og koma fjörinu í gang.

ALMA RUT, KRISTJÁN GÍSLA og RAKEL PÁLS hafa gríðarlega reynslu af því að skemmta fólki og halda uppi stuði.

Ásamt fleiri tónlistarmönnum voru þau í 6 ár með tónlistarsýningar á Hótel Grímsborgum undir stjórn Gunnars Þórðarsonar, m.a. Abba, Bee Gees, Vestmannaeyjalög, íslenskar perlur, afmælissýningu Gunnars Þórðarsonar, Olivia Newton-John og Hollywood-diskó, en hafa þau síðan verið að koma fram sjálfstætt á hinum ýmsu viðburðum.

Frábær skemmtun full af tónlist, gleði og nostalgíu!

Hvort sem það eru tónleikar, árshátíð eða dansleikur, þá mætir Neonbandið með líflega sviðsframkomu, frábæran söng og getur þú búið þig undir kvöld fullt af hlátri, dansi og ógleymanlegum augnablikum!

Til dæmis:

  • Abba
  • BeeGees
  • 70’s, 80’s og/eða 90’s
  • DISCO
  • perlur Gunnars Þórðarsonar
  • Vestmannaeyjalög
  • íslensk dægurlög
  • kvikmyndatónlist
  • Olivia Newton-John og Grease
  • James Bond
  • rokk og ról
    …og svo mætti lengi telja.

Hvaða þema sem passar við þinn viðburð.

Hvort sem það hentar betur fyrir viðburðinn að vera með tilbúið undirspil eða lifandi undirleik.

Oftast koma þau fram með tilbúið undirspili en þau geta líka komið með fullskipaða hljómsveit með sér þar sem bandið er skipað nokkrum af bestu hljóðfæraleikurum landsins.

Markmið þeirra?
Að flytja hugljúfa tóna eða að fá alla á fætur!

Neonbandið er frábær valkostur sem milli-atriði eða upphitun fyrir ball, en það er líka upplagt að láta Neonbandið sjá um ballið!

Þau komið með hljómsveit með sér eða verið með tilbúið undirspil og haldið uppi gleði og stuði fram eftir kvöldi!

Með frábærri sviðsframkomu, fagmennsku og öflugum röddum skapa þau skemmtun fulla af gleði og tónlist sem nær til allra kynslóða.